Hugmyndasamkeppni um merki !

Auglýsingin hér að neðan mun birtast hér fyrir austan í vikunni ef þið vitið um einhvern utan svæðisins sem mögulega gæti teiknað til sigurs þá látið viðkomandi vita.

DREKAR vélhjólaklúbbur austurlands efnir til samkeppni um merki fyrir félagið.
Merkið skal innihalda nafn félagsins og vera lýsandi fyrir það að um er að ræða austfirsk bifhjólasamtök sem kenna sig við landvætt austurlands.
Hafa ber í huga að auðvelt þarf að vera að setja merkið í framleiðslu hvort heldur sem lítið taumerki eða sem fánamerki í fullri stærð.
Verðlauna tillagan verður keypt af höfundi á Kr: 50.000. tillögum skal skilað fyrir 1. júlí 2008 til:
Vélgæði ehf
v/VKA merki
Hafnargötu 43
750 Fáskrúðsfjörður
Og skal nafn höfundar fylgja með í lokuðu umslagi.
 
Klúbburinn áskilur sér rétt til að velja eina tillögu eða hafna öllum.
 


Rúntað með norðanmönnum.

Sátum fyrir félögum úr Tíunni og rúntuðum með þeim á Seyðisfjörð í blíðunni, ljómandi góður dagur.

IMG_1428

IMG_1429

IMG_1435

IMG_1440

 

 


Annar í hvítasunnu .

Sá á vefnum hjá Tíunni að þeir stefna á ferð austur mánudaginn 12. brottför frá Akureyri kl 9 og 11. Er ekki rétt að sitja fyrir þeim í Jökuldalnum eða á Egilsstöðum ?

Nýir félagar.

Það hefur verið spurt nokkuð um hvernig menn beri sig að ef þeir vilja gerast félagsmenn í klúbbnum.

Ef menn hafa ekki fengið úthlutað númeri þá er best að senda gjaldkeranum póst á <einaroggudbjorg@simnet.is> með kennitölu, GSM númeri og netfangi.

Einar sendir banka upplýsingar til baka og væntanlegur félagsmaður leggur inn árgjaldið.

Þegar Einar hefur fengið staðfestingu fyrir innlögn þá úthlutar hann hinum nýja félagsmanni númeri.

Einfalt ekki satt  Smile


Frábær rúntur !

IMG_1421

IMG_1425

Takk fyrir kvöldið félagar.

 


Miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiðvikudagur .............

Spáin er barasta þokkaleg svo það er bara ekkert annað að gera en láta sjá sig hjá póstinum klukkan sjö og purra svo saman inní vorkvöldið um átta leytið í frábærum félagsskap.


Nýr bifhjólaklúbbur !

p002

 

Þessi mynd var að berast okkur, hún er tekin á stofnfundi bifhjólasamtaka í ónefndu héraði í Glatkistan.


800 hestöfl.

monster_bike

 

Það er reyndar rúmlega fjögur og hálft tonn svo það veitir örugglega ekkert af nokkrum hestum til að koma ósköpunum úr sporunum !


Datt af baki !

Hef heyrt af knöpum sem detta af baki og klárinn stendur eftir en vissi ekki að það væri hægt á bifhjóli ! Vona bara að honum heilsist vel.
mbl.is Bifhjólamaður féll af hjóli sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítaspá !

Það spáir snjókomu eða slyddu um allt svæðið fyrir "miðvikudag 2" svo það þarf ekki að búast við mikilli mætingu hjá póstinum þetta miðvikudagskvöldið en hér eftir verður þetta bara uppávið.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband