Niðurstöður dómnefndar.

Dómnefnd hefur komist að niðurstöðu og eftirfarandi tillögur eru þær sem kosið er á milli í kjörinu um merki fyrir klúbbinn.

Tekið skal fram að dómnefnd lýtur svo á að texti sé ekki hluti hugverks og því sé mögulegt að nota "VKA" , "Drekar" og "vélhjólaklúbbur austurlands" á ýmsa vegu í og með merkjunum.

Tillaga "11".

No_11

Tillaga "26"

Tillaga_26

 

 

Tillaga "27"

Tillaga_27

Tillaga "29"

Tillaga_29

Tillaga "19"Tillaga_19

 

 


Vegakerfið

Skrapp á fáskrúðsfjörð um helgina með myndavélina að vopni til að skoða hvernig vegagerðin stæði sig og ekki var útkoman góð, eins og sjá má á myndunum þá mega þeir alveg sópa gatnamótin hér fyrir austan, þetta er stórhættulegt fyrir bifhjólfólk. Munið öryggisfatnaðinn Kv #36

vka 005vka 007

vka 0081accident134


Endalaus skortur á tímaleysi !

Það eru helber ósannindi að yfirbloggarinn sé dauður hann hefur bara verið í fríi líkt og svo margir aðrir á þessum tíma árs.

Hvað merkja málinu viðkemur þá er von til að síðustu félagarnir úr merkjakjörnefndinni komi til byggða í vikunni, í framhaldi af því verður sett ígang kosning á meðal félagsmanna þar sem kosið verður á milli bestu merkjanna. Ég get lofað ykkur því að valið verður ekki auðvelt þar sem við höfum undir höndum mikið magn af frábærum hugmyndum.

Þegar ákvörðun kjörnefndar liggur fyrir verður gefinn út loka dagur kosninga og birtingadagur vinningstillögu, vonandi verður hægt að gefa þetta út í vikulokin.

Megi malbikið vera með ykkur !

#12


Allt að gerast .

Það er búið að opna alla tillögu hrúguna sem barst okkur vegna auglýsingar um félagsmerki, það má segja að við eigum verk fyrir höndum því við erum með heil ósköp af stórgóðum hugmyndum til að velja úr það er hins vegar þannig að júlí mánuður er ekki mjög hentugur til fundarhalda þar sem menn eru á þvælingi útum allt svo stjórnin er að hittast í smá skömtum. Við erum staðráðnir í að vanda til verka og setja fram bestu tillögurnar fyrir félagsmenn að kjósa um, vonandi tekur það ekki of langann tíma.

Miðvikudaginn 9. júlí leggja í hann úr Reykjavík félagar úr "mc SKUTLUR" ferðinni er heitið hringinn um skerið. Ef einhverntíma hefur verið ástæða til að bóna fákinn, fara í betri gallann og purra á móti klúbb á ferðinni þá er það núna ! Fylgist með hvernig dömunum gengur á síðunni þeirra www.skutlur.is

En hvernig er það er engin steming fyrir þessum hjóladögum á Agureyris ???


Hjóladagar

18-20 júlí verða Hjóladagar á Akureyri spurning hvort við sleppum ekki ferð í Kárahnjúka og rennum norður í staðinn ?


RÆS !

 Þar sem nánast engin viðbrög hafa verið við samkeppninni um merkið þá birtist hér auglýsingin aftur og eru félagsmenn sem og aðrir hvattir til að koma henni til allra þeirra sem mögulega gætu rissað upp nothæfa tillögu.

 

DREKAR vélhjólaklúbbur austurlands efnir til samkeppni um merki fyrir félagið.
Merkið skal innihalda nafn félagsins og vera lýsandi fyrir það að um er að ræða austfirsk bifhjólasamtök sem kenna sig við landvætt austurlands.
Hafa ber í huga að auðvelt þarf að vera að setja merkið í framleiðslu hvort heldur sem lítið taumerki eða sem fánamerki í fullri stærð.
Verðlauna tillagan verður keypt af höfundi á Kr: 50.000. tillögum skal skilað fyrir 1. júlí 2008 til:
Vélgæði ehf
v/VKA merki
Hafnargötu 43
750 Fáskrúðsfjörður
Og skal nafn höfundar fylgja með í lokuðu umslagi.
 
Klúbburinn áskilur sér rétt til að velja eina tillögu eða hafna öllum.


Viðburða dagatal VKA.

  • 21. maí:Pósthússplanið kl 19:00. brottför kl. 20:00
  • 28. maí: Pósthússplanið. Mæting 19.00. brottför kl 20:00  Lagt á ráðin um akstur á sjómannadaginn.   
  • 1.  júní:    Sjómannadagurinn
  • 4.  júní:    Pósturinn Mæting 19.00.  brottför kl. 20:00
  • 8.  júní: Kaffi á Skriðuklaustri. Mæting N1 Egilsstöðum kl. 14:00
  • 11.júní: Pósthúsplanið Reyðarfirði kl. 19:00 farið 20.00. Lagt á ráðin um hópastur á bíladaga
  • 17.  júní: Reyðarfjörður pósthús kl. 13.00 Hópkeyrsla Reyðarfjörður-Egilsstaðir
  • 18.  júní  Pósthúsplanið Mæting 19.00. brottför kl. 20:00
  • 25. júní Pósthúsplanið Mæting 19.00. brottför kl. 20:00  Lögð drög að hópakstri á Hornafjörð
  • 28-29.Humarhátíð á Hornarfirði 
  • 2.  júlí: Pósthúsplanið Reyðarfirði kl.19:00 brottför 20:00 Skipulagður akstur á landsmót
  • 3-6. júlí: Landsmót vélhjólamanna á Lísuhóli Snæfellsnesi
  • 9.  júlí: Pósthúsplanið Mæting 19.00. farið 20:00
  • 12.  júlí: Hópferð á Neskaupstað,  mæting Póshúsplanið  kl. 15:00
  • 16. júlí: Pósthúsplanið Mæting 19.00. brottför kl. 20:00
  • 20.  júlí: Kárahnjúkar (Fljótsdalshringur)
  • 23.  júlí: Pósthúsplanið kl.19:00 brottför kl:20:00 Helgin undirbúin gaumgæfilega
  • 25.-27. júlí:  Franskir dagar á Fáskrúðsfirði
  • 26  júlí: Borgafjörður Eystri  (tónleikar)
  • 30. júlí: Pósthúsplanið Mæting 19.00.  Velt vöngum yfir mögulegum akstri um vitlausramannhelgina. 
  • 1-3. ágúst:  Neistaflug Neskaupstað
  • 6. ágúst: Pósthúsplanið kl. 19:00  Unirbúin samkeyrsla til Davíkur
  • 9-10. ágúst   Fiskidagar Dalvík (gisting)
  • 13. ágúst Pósturinn Mæting 19.00.  brottför kl. 20:00
  • 20.  ágúst Pósturinn Mæting 19.00. brottför kl. 20:00
  • 27. ágúst Pósturinn Mæting 19.00. brottför kl. 20:00 

Ferju fylgd !

Tveir úr klúbbnum eiga mætingu í ferjuna á Seyðisfirði kl:14.00. miðvikudag 21. það væri gaman ef einhverjir hafa tök á að rúlla með þangað.

Hinir mæta svo bara hjá póstinum um kvöldmatarleytið og purra út í vorið kl. 8.


Jæja þá er það miðvikudagur aftur !

Mögulega verður hægt að toppa mætinguna frá því síðast sem var stórgóð.

Mæting um sjö brottför klukkan 8.

 

IMG_1422

 

Sting uppá að menn noti "athugasemdir" hér fyrir neðan til að boða/afboða sig eða koma sér saman um T.d. brottfarir frá nágrana stöðunum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband