Þá er það framhaldið . Núna er farið að skyggja á kvöldin og þá er um að gera að fara gætilega, það er oft sagt að við sjáumst illa í umferðinni og þá ættum við að sjást ver þegar skyggja tekur svo ég segi Bílstjóri líttu tvisvar ..............
Bifhjólamaður .
Hafðu eftirfarandi í huga:
4. Ef bílstjórinn á undan þér snögghemlar, vertu þá viss um að þú getir stöðvað örugglega.
5. Ekki vera feiminn. Láttu sjá þig í áberandi öryggisfatnaði.
6. Gefðu merki tímanlega áður en þú breytir um akstursstefnu.
Ökumaður.
Hafðu eftirfarandi í huga:
4. Fylgstu vel með öllum merkjum frá mér. Gefðu merki áður en þú framkvæmir. Hægðu á þér í tíma svo ég hafi líka möguleika og svigrúm til að bregðast við.
5. Aktu í samræmi við lög og reglur. Aktu eins og þér finnst að aðrir eigi að aka í kring um þig.
6. Sýndu mér tillitsemi og vertu viðbúinn því að ég get ert mistök.
Framhald síðar. Ps. munið Hjálminn
Flokkur: Vísindi og fræði | 6.8.2008 | 17:53 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.