Það eru helber ósannindi að yfirbloggarinn sé dauður hann hefur bara verið í fríi líkt og svo margir aðrir á þessum tíma árs.
Hvað merkja málinu viðkemur þá er von til að síðustu félagarnir úr merkjakjörnefndinni komi til byggða í vikunni, í framhaldi af því verður sett ígang kosning á meðal félagsmanna þar sem kosið verður á milli bestu merkjanna. Ég get lofað ykkur því að valið verður ekki auðvelt þar sem við höfum undir höndum mikið magn af frábærum hugmyndum.
Þegar ákvörðun kjörnefndar liggur fyrir verður gefinn út loka dagur kosninga og birtingadagur vinningstillögu, vonandi verður hægt að gefa þetta út í vikulokin.
Megi malbikið vera með ykkur !
#12
Flokkur: Vísindi og fræði | 21.7.2008 | 22:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.