Auglýsingin hér að neðan mun birtast hér fyrir austan í vikunni ef þið vitið um einhvern utan svæðisins sem mögulega gæti teiknað til sigurs þá látið viðkomandi vita.
DREKAR vélhjólaklúbbur austurlands efnir til samkeppni um merki fyrir félagið.
Merkið skal innihalda nafn félagsins og vera lýsandi fyrir það að um er að ræða austfirsk bifhjólasamtök sem kenna sig við landvætt austurlands.
Hafa ber í huga að auðvelt þarf að vera að setja merkið í framleiðslu hvort heldur sem lítið taumerki eða sem fánamerki í fullri stærð.
Verðlauna tillagan verður keypt af höfundi á Kr: 50.000. tillögum skal skilað fyrir 1. júlí 2008 til:
Vélgæði ehf
v/VKA merki
Hafnargötu 43
750 Fáskrúðsfjörður
Og skal nafn höfundar fylgja með í lokuðu umslagi.
Klúbburinn áskilur sér rétt til að velja eina tillögu eða hafna öllum.
Flokkur: Vísindi og fræði | 12.5.2008 | 19:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.