Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Ég vil bara benda öllum ökumönnum á að fara varlega í umferðinni
Bifhjólamaður.Hafðu eftirfarandi í huga:
1. Lestu ávallt vel umferðina í kringum þig.
2. Fylgstu vel með öðrum ökumönnum og vertu viðbúinn því óvænta.
3. Vertu viðbúinn að gefa eftir forgang sem þú ,,átt" á gatnamótum til þess að bjarga þér. Ekki fórna þér né öðrum í umferðinni í ,,rétti".
Ökumaður.Hafðu eftirfarandi í huga :
1. Taktu eftir mér. Ég er í umferðinni á mótorhjóli.
2. Ég virka alltaf minni en ég er og er oftast mær en þú heldur. Líttu tvisvar í báðar áttir og gleymdu ekki dauða punktinum. Ég get verið þar.
3. Passaðu bilið á milli okkar, ég þarf jafn mikið pláss og þú og get þurft að bremsa snögglega.
Muni að passa hraðan, ekki of hratt og ekki of hægt bara passlega......Kv #36
Vinir og fjölskylda | 3.8.2008 | 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)