Tryggingar !

Mig hefur alltaf langað að vita hvort ég er að borga tryggingafélaginu mínu "sanngjarna" upphæð fyrir hjólið mitt, þegar ég hef gengið á menn til að fá þá til að segja mér hvað þeir borgi fyrir sín hjól verður oft fátt um svör, það virðist vera vinnuregla hjá tryggingasölum að telja kúnnanum trú um að hann sé að fá bestu kjör sem gefin hafa verið og að annað eins þekkist bara ekki. Í von um að komast að hinu sanna í málinu hefur verið sett upp könnun hér til hliðar og þú veist ekki hvað hinir borga nema að smella á þína upphæð fyrst.


Alvöru ferðalag.

Þar sem ég er sérstakur áhugamaður um ferðalög og þá sér í lagi ferðalög sem eru ekki alltof "niðursoðin" þá verð ég að benda ykkur á uppáhalds ferðalangana mína þar sem ég er nokkuð viss um að einhverjir geta haft gaman af að stúdera flandrið á þessum Áströlsku unglingum.  http://www.horizonsunlimited.com/forwood/ 


100% athygli við aksturinn.

athygli

Núna þegar sumarið er að nálgast þá er rétt að minna menn á að hafa hugann við aksturinn því annars getur endað illa............


Tenglar á allt sem máli skiptir.

Eftir að vera búinn að eyða talsverðri vinnu í að safna saman áhugaverðum tenglum tengdum bifhjólum og skildu efni þá komst ég að því að menn þurfa ekki að þekkja nema eina slóð og hún er www.nattfari.is . Húsvíkingarnir eiga heiður skilið fyrir síðuna sem þeir eru með hún er einfaldlega lang fróðlegasta íslenska bifhjólasíðan á netinu. Þannig að ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar eða viljið missa ykkur á flug á netinu þá er www.nattfari.is síðan.


"CE" merkingar hlífðarbúnaðar.

Bifhjólafólki ber að nota viðurkendan hlífðarfatnað samkvæmt lögum, staðlarnir sem um er að ræða eru eftirfarandi:

Hjálmar: ECE 22.05.

Stígvél (skór): CE EN 13634

Gallar : CE EN 13595

Bakhlífar: CE EN 1621

Hanskar CE EN 13594

Gleraugu CE EN 1938´

Þá er bara að fara í gegnum búningana og athuga hvað manni hefur verið selt fram að þessu og að sjálfsögðu að hafa þessar upplýsingar með þegar verið er að versla öryggisfatnað. Þessar upplýsingar eru fengnar úr bæklingi frá umferðarstofu sem nýlega fór í dreyfingu.


Honda dráttarvél !

Hondur geta verið hin gagnlegustu tæki eins og sjá má á þessum myndum.

Honda_tow_1   Honda_tow_2 Honda_tow_3 Honda_tow_4 


Aðalfundur

Aðalfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16.apríl næstkomandi, vonandi verða sem flestir á svæðinu svo hægt verði að halda fjölmennan fund.  Ég vil hvetja félagsmenn að koma með tillögur varðandi bloggið og einnig væri gaman að fá myndir frá fleirum.

 


Klúbbmerki.

Skoðið myndaalbúmið og látið heyra frá ykkur hvað ykkur finnst um þessar tillögur.

Allir eru númer!

Svona lítur félagatalið út eftir að dregið hefur verið um númer í klúbbnum:

1Grétar Helgi Geirsson
2Rúnar Jóhannsson
3Örn Þorsteinsson
4Hlífar Þorsteinsson
5Heiðar Víkingur Sölvason
6Magnús Aðils Stefánsson
7Páll Sigtryggur Björnsson
8Einar Sverrir Björnsson
9Sigurður Vilhelm Benediktsson
10Benedikt Björnsson
11Guðjón Arnar Einarsson
12Högni Páll Harðarson
13Theódór Elvar Haraldsson
14Ólafur Níels Eiríksson
15Sigurður Þórsson
16Kristján Gunnar Helgason
17Einar Óli Rúnarsson
18Þorfinnur S Hermannsson
19Þorsteinn O Björgvinsson
20Einar Dalberg Einarsson
21Jón Kristinn Henriksen
22Hlynur Bragason
23Magnús Þorri Magnússon
24Auðbjörn Már Guðmundsson
25Brynjar Þór Ingjaldsson
26Stefán Ríkharðsson
27Björn Starri Júlíusson
28Ari Sævarsson
29Smári Sigurjónsson
30Ingvar Þorleifur Hrólfsson
31Jóhann Sigurður Kristjánsson
32Þórhallur Rúnar Ásmundsson
33Örvar Friðriksson
34Níels Pétur Sigurðsson
35Ómar Sverrisson
36Níels Sigurður Þorvaldsson

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband